jæja gott fólk, þá er maður kominn heim og farinn að skrifa aftur með íslensku letri

Ég lagði af stað frá Brisbane mánudagskvöldið 11. ágúst kl. 20:05 að staðartíma. Ég var dauðþreyttur og það hvarflaði ekki annað að mér en að ég myndi sofa mestallt flugið til Singapore en það varð nú ekki raunin

Flugið þangað tók um 7 tíma og ég rétt náði að sofna aðeins síðasta klukkutímann. Á milli Singapore og Dubai náði ég svo að sofa fyrsta klukkutímann og síðasta hálftímann af þeim 8 tímum sem það flug tók. Vegna þess að það er verið að stækka flugstöðina í Dubai þurfti vélin að leggja töluvert langt frá og við farþegarnir að fara með rútu þangað. Hitinn úti var óbærilegur (það heitasta og rakasta sem ég kynntist í Ástralíu var ekkert í samanburði við þetta!) og rútan troðin af fólki og því mikill léttir að komast loks að brottfararhliðinu

Síðasti liðurinn, Dubai-London var svo allur í dagsbirtu og ekki hægt að draga fyrir gluggann, en þar sem útsýnið var stórkostlegt hefði ég hvort eð er lítið getað fest svefn

Það var því örþreyttur ungur maður sem þurfti að bíða í London í 9 tíma!

Ég fann að ef ég myndi sofna á Heathrow myndi enginn mannlegur máttur geta vakið mig þannig að ég gekk um eins og vitfirringur á milli þess sem ég lagði kapal í Spilastokknum (i-pod) mínum með Bob Dylan í botni!

Í fluginu til Íslands var ég kominn yfir alla syfju og fann aðeins fyrir stingandi þreytu í skrokknum og doða í höfðinu...mér hefur sjaldan liðið eins undarlega!

Og mikið ofboðslega var ég feginn að Inga frænka kom og sótti mig á flugvöllinn
Flugþreytan eftir á var samt ekki eins slæm og hún var þegar ég kom til Brisbane, þegar ég gat ekki reiknað og þurfti að taka á öllu mínu til að lesa á klukku!?! Hún var samt nóg til að ég óttaðist að ég myndi ekki ná að jafna mig nægilega fyrir brúðkauð Kidda bróður míns og besta vinar

Það slapp samt til og ég stóð mína pligt sem svaramaður, afslappaður og í nokkuð góðu formi

Ég reyndi að hugsa sem minnst um að ég þyrfti að halda ræðu í veislunni (sem er ekki mín sterkasta hlið!

) Það er allt annað að fara á svið og flytja tónlist...það er eitthvað sem ég kann og er þar af leiðandi öruggari með mig í þeim kringumstæðum

Ég á ekki auðvelt með orð (sbr. að semja texta við lögin mín) og að flytja þau án stuðnings frá tónlist er bara mjög erfitt fyrir mig. Ég held samt ég hafi komist nokkuð stórslysalaust frá ræðunni

En þetta var þægileg og falleg athöfn, stutt, látlaus og laus við allt orðskrúð

Og veislan kósý og notaleg

Frábær dagur í alla staði

Ég get ekki lýst því hvað það er búið að vera gott að vera kominn heim!

Mér hefur liðið eins og réttur maður á réttum stað á réttum tíma, eins og ég sé í fullkomnum samhljómi við núið og líðandi stund, sem er algjörlega ómetanleg tilfinning!

Þessi ferð hefur svo sannarlega skilað sínu og gott betur!!!
Ég stefni á að byrja að fara yfir þessar 1200 myndir sem ég tók í ferðinni í næstu viku svo ég geti farið að setja eitthvað af þeim hér inn...eða einhversstaðar annarsstaðar og þá set í link þangað hér...
góðar stundir

Tryggvi